Nýr starfskraftur

Nú í maí sl. bættist við nýr starfsmaður hjá okkur, en það er Jóna Guðrún Kristinsdóttir sem lauk BS námi í landslagsarkitektúr frá Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri núna í vor. Lokaverkefni Jónu Guðrúnar var Dagsljós í stækkandi borgarlandslagi á 64°N og vonandi fáum við tækifæri til að vinna með þetta viðfangsefni á stofunni á næstu misserum.

Við bjóðum hana velkomna og hlökkum til að vinna með Jónu Guðrúnu í þeim fjölbreyttu verkefnum sem eru teiknistofunni þessar dagana.

Previous
Previous

Heiðursverðlaun – Ehrenpreis

Next
Next

Verknemi kveður